Codapent er þátttökulistaverk sem býður uppá skjótan bata við meðvirkni. Listrannsóknin rannsakar hvernig iðka megi lækningu í gegnum listrænar gjörðir. Hvernig þróa megi hina fullkomnu lyfleysu með þátttöku áhugasamra einstaklinga. Á Bataplötu Codapent syngur Tilfinningakórinn frumsamin lög sem eru hluti af Codapent meðferðinni og leiðbeina þátttakendum í átt að bata.